Áfram ríkjandi suðvestan átt, segja spámenn Veðurklúbbs Dalbæjar
Veðurklúbbur Dalbæjar hélt sinn reglulega fund í gær og spáði fyrir um júníveðrið. Í fundargerð kemur fram að þangað hafi mætt þau Haukur Haraldsson, Bergur Þór Jónsson, Hörður Kristgeirsson, Magnús Gunnlaugsson, Jón Garðarsson, Kristján Loftur Jónsson og Þóra Jóna Finnsdóttir.
Byrjaði dagskrá með því að veðurklúbbsfélagar hlustuðu saman á útvarpsviðtal sem þáttarstjórnendur í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni tóku við ritara klúbbsins þann 30. maí sl. varðandi starfsemi klúbbsins. Segir í skeyti spámanna að þeir hafi almennt verið sáttir við upplýsingarnar sem komu fram og samþykktu því að ritarinn svaraði áfram fyrir klúbbinn.
„En því næst fórum við yfir tunglkomur sem tengjast júnímánuði og urðum sammála um að líklegast yrði áfram ríkjandi suðvestan átt á landinu sem er okkur hérna á stór Dalvíkursvæðinu mjög hagstæð, en því miður ekki endilega eins gott fyrir suðvestur hornið. Engir voru draumar félaga að þessu sinni sem gátu tengst veðri í júnímánuði en tilfinningin hjá flestum var sú að júní yrði að mestu leyti svipaður maí en líklega hlýrri einhvern hluta. Það er jákvætt fyrir okkur og líklega fyrir ferðaþjónustu hérna á Norðurlandi, það er að segja ef ferðamenn eru flestir það forsjálir að skoða veðurspána okkar áður en ferðaplön eru endanlega ákveðin. Í framhaldi af því skoðuðum við hverju samkeppnisaðilar okkar á öðrum veðurstofum væru að spá næstu vikuna og þar virtist vedur.is , belgingur.is og yr.no vera í meginatriðum sammála bæði sín á milli og okkur.“
Eins og ævinlega er kvatt í bundnu máli og ríður ritari klúbbsins á vaðið með eftirfarandi limru:
Júní hefur jafnan verið
misjafn hingað heim á skerið.
En hlustið nú,
því okkar trú
er að við þurfum húfuderið.
/Höf. Bjór.
Hlýr er júní blíður blær,
blóm á túnum gróa.
Geislarúnir röðull skær
ritar á Húnaflóa.
/Höf. Bragi Jónsson Hoftúnum í Staðarsveit (Refur bóndi)
Skúr er nú í Skagafirði
skyldi hann ekki batna senn.
Andskotinn þá alla hirði
sem ausa vatni á gamla menn
/Höf. Gestur Ólafsson.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.