Erlu-kjúlli og eftirlæti húsbóndans

Þórdís Erla Björnsdóttir og Jón Örn Stefánsson á Blönduósi urðu við áskorun Zophoníasar og Katrínar í mars 2007 og buðu lesendum til veislu. Þau skoruðu á Tryggva Björnsson og Hörpu Hermannsdóttur á Blönduósi að gefa uppskriftir sem voru svo birtar í páskablaði Feykis.  

Rækjuforréttur
fyrir 4-6 

  • 300 gr. rækjur.
  • 150 gr. majones.
  • 3 msk. tómatsósa.
  • 2 tsk. sætt sinnep.
  • 2 des. þeyttur rjómi.
  • Safi úr ca. ½ sítrónu.

 

Aðferð.

  • - þerra rækjur mjög vel
  • - hræra tómatsósu, sinnepi og mæjó vel saman.
  • - blanda hrærunni og rækjunum varlega út í rjómann.
  • - smakka sítrónusafa saman við.

 ATH! Gott að útbúa réttinn sólarhring áður en það á að neyta hans. Borðað með ristuðu brauði og smjöri.

Erlu-kjúlli
fyrir 4-6

  •  8 stk.kjúklingabringur.
  • ½  dós. sólþurrkaðir tómatar.
  • 2 stk. paprika
  • 2 stk rjómaostur með sólþurrkuðum tómötum.
  • 1 stk. matreiðslurjómi
  • 1 stk. hvítlaukur.
  • Sveppir, einn bakki.
  • Kjúklingakraftur, einn teningur.

 

  • Aðferð:
    - Skera bringurnar í bita og steikja þær svo upp úr svörtum pipar og hvítlauk, sett til hliðar.
  • - Osturinn bræddur saman við rjómann, sveppir, tómatar, paprika og kraftur sett út í og látið malla í smá stund.
  • - Allt sett saman í eldfastmót og í ofn í 1 klst. Við 160-180°. 

 

Eftirlæti húsbóndans
fyrir 4-6

  •  8 stk. kókosbollur.
  • 2 stk. Mars.
  • 2 stk. Þristar.
  • 200 g. Nóa kropp.
  • ½  lítri þeyttur rjómi.
  • Súkkulaði íssósa.
  • Smá vanillusykur.

 

Aðferð.

  • - Kókosbollur kramdar í botn á djúpu formi.
  • - Mars og Þristar brytjað í litla bita.
  • - Vanillusykri hrært varlega út í rjómann ásamt Marsi, Þristum og 100 gr. af Nóa kroppinu.
  • - Rjóminn settur ofan á bollurnar, restin af kroppinu þar á og svo loks skreytt með íssósunni.

Verði ykkur að góðu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir