Rausnarleg gjöf til Heimilisiðnaðarsafnsins

Guðrún Jónsdóttir frá Hnjúki spinnur á rokk í Heimilisiðnaðarsafninu (til vinstri). Á myndinni til hægri klæðist Steinunn Jósefsdóttir (1886-1977) grænum kyrtli sem varðveittur er í Heimilisiðnaðarsafninu. Ljósm./textile.is.
Guðrún Jónsdóttir frá Hnjúki spinnur á rokk í Heimilisiðnaðarsafninu (til vinstri). Á myndinni til hægri klæðist Steinunn Jósefsdóttir (1886-1977) grænum kyrtli sem varðveittur er í Heimilisiðnaðarsafninu. Ljósm./textile.is.

Í tilefni af því að þann 17. janúar eru liðin 100 ár frá fæðingu Guðrúnar Jónsdóttur (Nunnu) frá Hnjúki komu afkomendur hennar saman og heimsóttu m.a. Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi. Á vef Heimilisiðnaðarsafnsins segir að í safninu séu margir munir varðveittir eftir þær mæðgur Stefaníu Steinunni Jósefsdóttur (1886–1977) og Guðrúnu Jónsdóttur (1916–2014).

Samkvæmt vef Heimilisiðnaðarsafnsins afhenti Magnús, sonur Guðrúnar, fyrir hönd afkomenda hennar safninu hundrað þúsund krónur til að heiðra minningu þeirra mæðgna í tilefni tímamótanna og sagði: 

„Heimilisiðnaðarsafnið skipaði stóran sess í hjarta Nunnu, en hún hafði yndi af því að taka þátt í starfi þess, að klæða sig í upphlutinn og spinna á rokkinn fyrir sýningargesti, gaf það henni margar góðar stundir“.Ljósadúkur unninn af Steinunni Jósefsdóttur. Útsaumaður með Hedebo - og Frönskum saumi. Í kringum dúkinn er kappmelluð blúnda úr örfínum þræði.

Myndatexti: Ljósadúkur unninn af Steinunni Jósefsdóttur. Útsaumaður með Hedebo - og Frönskum saumi. Í kringum dúkinn er kappmelluð blúnda úr örfínum þræði.

„Steinunn á Hnjúki var annáluð hannyrðakona og sitthvað sem varðveist hefur eftir hana er hreinasta list. Guðrún dóttir hennar var einnig mikil hagleikskona í höndum og sérlega flínk spunakona. Var hún ævinlega boðin og búin að koma í safnið með rokkinn sinn og spinna fyrir skólabörn og gesti. Guðrún var gjaldkeri safnsins á fyrstu starfsárum þess eða allt til þess tíma að mynduð var sjálfseignarstofnun um safnið árið 1993. Hún lét sér afar annt um safnið og lagði fram mikið og óeigingjarnt starf í þágu þess,“ segir á vefum. 

Elín S. Sigurðardóttir, forstöðumaður Heimilisiðnaðarsafnsins, tók við gjöfinni og þakkaði  fyrir hönd safnsins, einstakan rausnarskap fjölskyldunnar frá Hnjúki.  

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir