Gleðiganga Árskóla - Myndir

Nemendur og starfsfólk Árskóla gengu sína árlegu gleðigöngu í morgun. Gengið var frá Árskóla að sjúkrahúsinu og þaðan niður í bæ og snúið við á Kirkjutorgi. Gleðigangan endaði svo með grillveislu við Árskóla. 

Það var örlítið kalt úti og vætusamt en enginn lét það á sig fá og gleðin var við völd. Flestir mættu í litskrúðum klæðnaði og sumir í búningum. Blaðamaður Feykis brá sér í gleðigöngu Árskóla og smellti nokkrum myndum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir