Skíðadeild Tindastóls fær háan styrk
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
09.06.2017
kl. 09.07
Á fundi byggðarráðs Svf. Skagafjarðar í vikunni var lagt fram bréf frá Sambandi sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, varðandi styrkumsókn Skíðadeildar Umf. Tindastóls til samtakanna að upphæð 40 milljónir króna. Var erindið tekið fyrir í stjórn SSNV þann 9. maí 2017.
Óskað var eftir afstöðu sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Skagafjarðar um hvort hún sé meðmælt eða andvíg því að SSNV veiti Skíðadeild Umf. Tindastóls styrk að fjárhæð 30 milljónir króna.
Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar er meðmælt því að SSNV veiti Skíðadeild Umf. Tindastóls styrk að fjárhæð 30 milljónir króna.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.