Sex frá Tindastól í afreksbúðir KKÍ

KKÍ mun standa fyrir Afreksbúðum í ár líkt og síðastliðin sumur en þær eru undanfari að U15 ára landsliði Íslands í körfubolta. Yfirþjálfarar búðanna völdu 60 drengi og 50 stúlkur allstaðar að af landinu til að taka þátt en þar muna yfirþjálfarar ásamt vel völdum gestaþjálfurum stjórna ýmsum tækniæfingum. Afreksbúðir eru fyrir ungmenni fædd 2003 og verða haldnar tvisvar í sumar.

Á heimasíðu Tindastóls má sjá að sex efnilegir körfuboltakrakkar  hafa verið valdir frá félaginu til að taka þátt í afreksbúðunum þetta árið. Þau eru:

Andrea Maya Chirikadzi
Eva Rún Dagsdóttir
Katrín Eva Óladóttir
Marín Lind Ágústsdóttir
Stefanía Hermannsdóttir
Örvar Freyr Harðarson

Þau spiluðu öll í 8. fl. síðastliðin vetur.

Fyrri helgin verður 10. - 11. júní og sú síðari 19. - 20. ágúst og verður æft í íþróttahúsinu á Álftanesi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir