Pepelu passar markið hjá Kormáki Hvöt

Meistaraflokksráð Kormáks Hvatar heldur áfram að safna liði til að styðja við markmið liðsins í sumar en framundan er spennandi sumar í nýrri deild og sem nýliðar í stóru tjörninni er ljóst að sú vegferð hefst aftast á vellinum, segir í tilkynningu frá ráðinu.

„Það er því með mikilli ánægju að tilkynna að José Luis Villar Alcaniz, sem gengur undir vinnuheitinu Pepelu, hefur ákveðið að slá til og verja mark Húnvetninga í sumar. Pepelu þessi er hokinn af reynslu í faginu og hefur spilað í b-deild Spánar auk mýgrútar leikja í þriðju efstu deild, svo hér eru á ferðinni löðrandi gæði! Pepelu kemur til okkar frá Cartagena í Múrsíuhéraði.
Velkominn í bleikt Pepelu!“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir