Pálmi Geir fær stórt tækifæri hjá Þór

Pálmi Geir og Ágúst Herbert handsala samninginn. Mynd: Thorsport.is
Pálmi Geir og Ágúst Herbert handsala samninginn. Mynd: Thorsport.is

Körfuknattleiksmaðurinn Pálmi Geir Jónsson hefur yfirgefið herbúðir Tindastóls og er gengin til liðs við Þór á Akureyri og mun leika með liðinu í Domino´sdeildinni á komandi leiktíð. Pálmi Geir er framherji og segir á heimasíðu Þórs að hann komi til með að styrkja hópinn hjá Þór verulega enda mikils vænst af honum.

„Þeir heyrðu bara í mér og höfðu mikinn áhuga á að fá mig. Voru spenntir að veita mér tækifærið til að gera þetta af alvöru og leika lykilhlutverk í liði í efstu deild. Mér fannst það virkilega spennandi og þar sem Ásdís er í HA þá lá þetta ágætlega við,“ sagði Pálmi er Feykir hafði samband við hann í gær.

Samningur Pálma Geirs er til tveggja ára.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir