Níu júdókappar í Tindastól á Íslandsmóti yngri flokka
Tindastóll átti níu keppendur á Íslandsmóti yngri flokka sem fram fór í Laugabóli, æfingaaðstöðu Ármanns, í Reykjavík sl. laugardag. Mótið er fyrir ellefu til tuttugu ára og er keppt í þyngdar- og aldursflokkum. Alls tóku 112 keppendur þátt í mótinu frá ellefu júdófélögum.
Á heimasíðu Tindastóls segir að hópurinn hafi farið suður til Reykjavíkur á föstudagskvöldið þar sem keppendur og fylgdarlið dreifðust víðs vegar um borgina og gistu hjá vinum og ættingjum.
„Eftir að vigtun lauk á laugardagsmorgninum klukkan 9 höfðu keppendur klukkutíma til að undirbúa sig fyrir átökin - en mótið sjálft hófst upp úr klukkan 10. Árangur hópsins á mótinu var góður og unnust alls eitt silfur og þrjú brons. Þorgrímur Svavar Runólfsson varð í öðru sæti í Dr. U15+90, Tsvetan Tsvetanov Michevski varð þriðji í Dr. U18-90, Viktor Darri Magnússon varð þriðji í Dr. U15-60 og Ása María Sigurðardóttir varð þriðja í St. U15-52. Aðrir keppendur stóðu sig líka vel og í heildina unnust margir góðir sigrar og eiga allir keppendur skilið gott hrós fyrir að hafa sýnt metnað, hugrekki og háttvísi.
Eftir að mótinu lauk skemmti hópurinn sér í leiktækjunum í Smáralindinni í smá tíma áður en lagt var af stað heim á leið,“ segir á Tindastóll.is.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.