Nágrannaslagur í Síkinu í kvöld
Sannkallaður nágrannaslagur verður í Síkinu í kvöld þegar Þór frá Akureyri mætir heimamönnum í Tindastól í Dominos deildinni í körfubolta. Leikurinn hefst klukkan 19:15 og verða hinir rómuðu grillborgarar á sínum stað fyrir leik.
Á fésbókarsíðu Körfuboltadeildarinnar segir að Þór hafi unnið Keflavík í síðustu umferð og ætli sér ekkert annað en að koma á Krókinn og berjast fyrir þeim stigum sem í boði eru.
Tindastóll hefur farið sér hægt af stað í deildinni, tapaði fyrsta leiknum á móti ÍR 71:74 og rétt marði Valsarana 73:69 eftir að hafa verið undir lungann úr leiknum.
Nú þurfa stuðningsmenn heldur betur að hvetja strákana til sigurs og leikmenn að trekkja vélina í gang. Áfram Tindastóll!
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.