Meistaramóti GSS 2018 lauk nú um helgina

Verðlaunahafar allra flokka eftir vel heppnað Meistaramót Golfklúbbs Sauðárkróks Mynd: GSS.
Verðlaunahafar allra flokka eftir vel heppnað Meistaramót Golfklúbbs Sauðárkróks Mynd: GSS.

Meistaramót Golfklúbbs Sauðárkróks í flokki fullorðinna var haldið dagana 4-7. júlí og var keppt í nokkrum flokkum. Þátttaka var með ágætum í flestum þeirra og veðrið ágætt alla dagana þrátt fyrir misvísandi veðurspár. Spilaðar voru 72 holur á fjórum dögum í öllum flokkum nema öldungaflokki kvenna þar sem spilaðar voru 54 holur.

Á FB-síðu Golfklúbbs Sauðárkróks kemur fram að Hlíðarendavöllur sé í sínu besta standi líkt og síðastliðið sumar og er fólk hvatt til að skella sér á völlinn. Klúbbmeistarar GSS að þessu sinni urðu þau Árný Lilja Árnadóttir og Arnar Geir Hjartarson.

Helstu úrslit og skor voru eftirfarandi:

Brynjar Örn Guðmundsson, Arnar Geir Hjartarson og Jóhann Örn Bjarkason. Mynd: GSS.

Meistaraflokkur karla:
1. sæti. Arnar Geir Hjartarson 317 högg.
2. sæti. Brynjar Örn Guðmundsson 322 högg
3. sæti Jóhann Örn Bjarkason

Meistaraflokkur Kvenna:
1. sæti. Árný Lilja Árnadóttir 331 högg
2. sæti. Hildur Heba Einarsdóttir 366 högg
3. sæti. Sigríður Elín Þórðardóttir 374 högg, en hún varð í 3. sæti eftir umspil við Dagbjörtu Rós Hermundardóttir.

Sigríður Elín Þórðardóttir, Árný Lilja Árnadóttir og Hildur Heba Einarsdóttir. Mynd: GSS.

 

1. flokkur karla.
1. sæti. Guðmundur Þór Árnason 353 högg
2. sæti. Andri Þór Árnason 359 högg
3. sæti. Friðjón Bjarnason 368

2. flokkur karla.
1, sæti. Þórhallur Rúnar Rúnarsson 448 högg
2. sæti. Pétur Björnsson 588 högg

Öldungaflokkur kvenna.
1. sæti. Ólöf Herborg Hartmannsdóttir 318 högg
2. sæti. Hafdís Skarphéðinsdóttir 334 högg
3. sæti. Kristrún Snjólfsdóttir 384 högg

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir