Ljómarallið á laugardaginn
Á morgun, laugardaginn 29. júlí, stendur Bílaklúbbur Skagafjarðar fyrir Ljómaralli í Skagafirði. Keppnin er sú þriðja í röðinni í Íslandsmótinu og fer fram samkvæmt reglum Akstursíþróttasambands Íslands sem fyrir liggja á www.akis.is.
Fyrsti bíll verður ræstur frá plani Skagfirðingabúðar kl 8:00. Keppnin er með hefðbundnu sniði, eknar verða fjórar ferðir um Mælifellsdal, tvær ferðir um Vesturdal og loks liggur leiðin aftur til Sauðárkróks þar sem eknar verða tvær ferðir um Nafirnar.
Vegna keppninnar verða eftirtaldir vegir lokaðir laugardaginn 29. júlí sem hér segir:
Kl. 08:10-13:00: Vegur nr. 35 um Mælifellsdal / Mælifellsdalsvegur F756 um 4,5 km frá Efribyggðarvegi nr. 751 eð Bugavatni. Við þetta lokast einnig aðkoma af vegslóða um Gilhagadal inn á fyrrnefndan veg.
Kl. 13:00-15:00: Vegur nr. 752 / F752 Skagafjarðarleið frá afleggjara til móts við Litlu-Hlíð / Hof og Hofsvelli að Þorljótsstöðum. Þessi vegur er í raun nyrsti hluti af Sprengisandsleið, Skagafjarðarmegin.
Kl. 15:45-17:00: Vegur um Nafir innanbæjar á Sauðárkróki, ofan (vestan) við elsta hluta bæjarins. Leiðin verður afmörkuð með merkingum.
Vegfarendum er skylt að virða lokanir og fyrirmæli starfsmanna keppninnar.
Bílaklúbburinn hvetur bæjarbúa og aðra gesti til að koma sér fyrir með nesti, jafnvel myndavél og horfa á keppnina og er það hin besta skemmtun. Fólki er bent er á að koma sér fyrir áður en leiðir loka og hafa eftirfarandi í huga:
- Vera í hæfilegri fjarlægð - ekki of nærri.
- Ekki vera utan í beygjum.
- Verið gjarnan á stað sem er hærri en vegurinn, ekki neðar.
- Hafið auga með börnunum og góða skemmtun!
Hægt er að nálgast nánari upplýsingar um keppnina á Facebooksíðu Bílaklúbbs Skagafjarðar.
Birting úrslita, endamark og verðlaunaafhending verður við Skagfirðingabúð kl. 17:00.
Keppnisstjóri er Arnar Freyr Árnason.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.