Körfuknattleiksdeild Tindastóls semur við Adomas Drungilas
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
10.06.2022
kl. 00.17
Körfuknattleiksdeild Tindastóls hefur samið við Adomas Drungilas um að leika með Tindastól næsta tímabil. Drungilas þekkja allir körfuboltaáhugamenn en hann varð Íslandsmeistari með Þór Þorlákshöfn vorið 2021.
Þegar þessi litáíski miðherji lék með Þór Þorlákshöfn skilaði hann 14 stigum, 10 fráköstum og fjórum stoðsendingum að meðaltali í 30 leikjum fyrir liðið. Þá var hann valinn besti leikmaður úrslitakeppninnar eftir að liðið tryggði sér titilinn.
Við bjóðum Drungilas hjartanlega velkominn í Skagafjörðinn og hlökkum við mikið til að sjá hann í Tindastólsbúningnum næsta haust.
/IÖF
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.