Johanna Henriksson ráðin þjálfari hjá knattspyrnudeild Tindastóls

Johanna Henriksson kampakát eftir að hafa skrifar undir samning við Tindastól. Mynd af Tindastóll.is
Johanna Henriksson kampakát eftir að hafa skrifar undir samning við Tindastól. Mynd af Tindastóll.is

Knattspyrnudeild Tindastóls hefur ráðið Svíann Johönnu Henriksson sem þjálfara hjá deildinni en hún mun verða aðalþjálfari 3. flokks kvenna og nýstofnaðs 2. flokks kvenna og einnig hluti af þjálfarateymi meistaraflokks kvenna og karla í formi markmannsþjálfunar.

Á  heimasíðu Tindastóls segir að Donni, þjálfari meistaraflokka Tindastóls, hafi áður unnið með Johönnu en hún kom fyrst til Íslands sem markmaður hjá Þór/KA fyrir nokkrum árum meðan Donni þjálfaði Þór/KA.

„Ég er svakalega glaður að fá Johönnu Henriksson eða Jojo eins og við köllum hana inn í þjálfaraliðið okkar. Johanna kom fyrst til Íslands sem markmaður hjá Þór/KA fyrir nokkrum árum og stóð sig vel. Það sem hún kemur með sem þjálfari er mikill metnaður og ástríða. Hún leggur sig alltaf fram og er drífandi og jákvæður einstaklingur. Jojo vill læra og gera allt sem hún gerir eins vel og kostur er. Við erum að mínu mati einstaklega heppin að fá svona flottan þjálfara til liðs við okkur og hún mun klárlega leggja sitt að mörkum til að gera alla í kringum sig betri,“ er haft efir Donna sem bætir við: „Ég vona að allir taki sérstaklega vel á móti Jojo sem mun vafalaust setja skemmtilegan svip á starfið okkar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir