Hilmar Rafn fékk að spreyta sig í lokaleik Venezia
Mbl.is segir frá því að Hilmir Rafn Mikaelsson, 18 ára guttinn frá Hvammstanga, hafi í gærkvöldi fengið tækifæri með liði Venezia í lokaumferð ítölsku A-deildarinnar í knattspyrnu. Feykir sagði frá því í ágúst síðastliðnum að Hilmir Rafn hafi gengið til liðs við Venezia frá Fjölni í Grafarvogi eftir að hafa spilað með Fjölni í Lengjudeildinni sumarið 2021.
Venezia mætti Cagliari í síðustu umferð deildarinnar í gær en Venezia, sem var nýliði í deildinni í vetur, var í neðsta sætinu og þegar fallið niður í B-deildina á ný. Hilmir kom inn á sem varamaður á 74. mínútu leiksins og náði því þeim merka áfanga að leika í efstu deild á Ítalíu.
Leikurinn endaði 0:0 og Venezia hafnaði þar með í neðsta sæti með 27 stig og féll ásamt Genoa með 28 stig og Cagliari með 30 stig.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.