Harkan sex í jólacrossfitkeppni á Króknum

Það voru alvöru átök við að lyfta sér upp á hendur margoft í kappi við tímann. Mynd: PF.
Það voru alvöru átök við að lyfta sér upp á hendur margoft í kappi við tímann. Mynd: PF.

Crossfit550 á Sauðárkróki stóð fyrir crossfitkeppni sl. fimmtudagskvöld þar sem allir gátu tekið þátt sem eitthvað hafa komið nálægt íþróttinni. Erna Rut Kristjánsdóttir, eigandi stöðvarinnar segir að um lítið og létt jólamót hafi verið að ræða þeim til skemmtunar.

„Þetta er fyrsta jólamótið sem við höldum síðan við opnuðum. Þetta var parakeppni og tólf pör sem kepptu. Keppt var í tveimur flokkum, RX sem er flokkur fyrir lengra komna og Scalað sem er flokkur fyrir alla hina sem vilja vera með en treysta sér ekki í RX æfingarnar.

Við ákváðum að hafa verðlaun fyrir best klædda parið og það var ótrúlega gaman að sjá hvað margir komu í einhvers konar búningum. Það voru hinsvegar Kristjana og Hanna sem báru af en þær komu sem Lína langsokkur og hesturinn hennar,“ segir Erna.

Feykir skaust á staðinn og smellti nokkrum myndum af keppendum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir