Hannes og Björgvin áfram hjá Stólunum

Myndirnar sýna þegar Sjávarborgarsamningarnir voru undirritaðir annars vegar við Hannes (fyrir ofan) og hins vegar við Björgvin (fyrir neðan).
Myndirnar sýna þegar Sjávarborgarsamningarnir voru undirritaðir annars vegar við Hannes (fyrir ofan) og hins vegar við Björgvin (fyrir neðan).

Enn berast fréttir úr stássstofunni á Sjávarborg en búið er að ganga frá samningi við þá Hannes Inga Másson og Björgvin Hafþór Ríkarðsson að þeir leiki áfram með Stólunum næsta tímabil í körfunni.

Hannes Ingi er framherji og án vafa mikið efni sem á eftir að reynast Stólunum vel með fenginni reynslu. Hann er 21 árs, 192 sm á hæð og hefur mikla yfirferð og úthald á vellinum. „Mér líst mjög vel á liðið. Það er búið að styrkjast og það er jákvætt og ég strax farinn að hlakka til næsta tímabils. Samkeppnin er góð, hún ýtir manni ennþá meira áfram í því sem maður er að gera!“ sagði Hannes Ingi er Feykir hafði samband við hann í gær.

Björgvin aftur á móti er bakvörður sem skoraði 11 að meðaltali í leik með Stólunum í vetur. Hann reyndist drjúgur í mörgum leikjum og m.a, í síðustu sex leikjum skoraði hann 22 stig gegn Grindavík, 18 og 22 stig gegn Keflavík í úrslitarimmunni. „Liðið verður mjög spennandi á næsta tímabili og er ég mjög spenntur fyrir því. Er mjög ánægður að kjarninn er áfram sem var á síðasta tímabili,“ segir Björgvin. Hann segist  leiðast það að missa Svabba út en aftur á móti verði gaman að fá Arnar og Axel á Krókinn. „Mér leið mjög vel í Tindastólsbúningnum í vetur og hugsa ég að næsti vetur verði ekki síðri. Topp klúbbur og topp liðsfélagar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir