Góður árangur Skagfirðinga á Akureyrarmóti UFA í frjálsum

Tanja, Rebekka, Stefanía og Andrea sem allar unnu til verðlauna. Mynd: Tindastóll.is.
Tanja, Rebekka, Stefanía og Andrea sem allar unnu til verðlauna. Mynd: Tindastóll.is.

Helgina 12.- 13. ágúst var Akureyrarmót UFA í frjálsum íþróttum haldið á Þórsvelli.  Rúmlega eitt hundrað keppendur mættu lit leiks, þar af voru 12 Skagfirðingar á ýmsum aldri og er óhætt að segja að þeir hafi staðið sig mjög vel.  Af árangri þeirra var þetta helst að frétta:

Yngri flokkar:
Tanja Kristín Ragnarsdóttir (10-11):          1. sæti í langst. og 2. sæti í 60 m hlaupi.
Rebekka Dröfn Ragnarsdóttir (12-13):      1. sæti í kúluvarpi.
Trausti Thorlacius (12-13):                          2. sæti í 600m og 3. sæti  í 80 m hlaupum.
Andrea Maya Chirikadzi (14-15):                1. sæti í kúluvarpi.
Stefanía Hermannsdóttir (14-15):              1. sæti í spjótkasti, og 2. sæti í kúluvarpi.

Flokkar fullorðinna (18 +):
Daníel Þórarinsson:                                       2. sæti í 200 m og 2. sæti í 400 m hlaupum.
Hrafnhildur Gunnarsdóttir:                           1. sæti í kúluvarpi og 1. sæti í kringlukasti.
Kristinn Freyr Briem Pálsson:                      1. sæti í hástökki og 2. sæti í kúluvarpi.
Rúnar Ingi Stefánsson:                                 1. sæti í kúluvarpi.
Sveinbjörn Óli Svavarsson:                          3. sæti í 100m hlaupi.
Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir:                      2. sæti í hástökki.
Ísak Óli Traustason:                                      Keppti í tugþraut, en lauk henni ekki.

Nánari upplýsingar um árangur keppenda má sjá HÉR !

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir