Forsala miða á bikarleikinn stendur yfir

Úrslitaleikir Maltbikarsins í körfubolta fara fram í næstu viku þegar Keflavík og Snæfell annars vegar og Skallagrímur og Njarðvík hins vegar mætast í kvennaflokki. Hjá körlunum eru það Haukar og Tindastóll og KR og 1. deildarlið Breiðabliks sem eigast við. Forsala miða fer fram á Tánni, Skagfirðingabraut 6 á Sauðárkróki og einnig verða seldir miðar meðan á leik Tindastóls og Vals stendur yfir nk. sunnudag í Síkinu.

Karlaleikirnir fara fram miðvikudaginn 10. janúar kl. 17:00 og 20:15 en kvennaleikirnir daginn eftir, fimmtudaginn 11. janúar kl. 17:00 og 20:15. Leikur Hauka og Tindastóls er sá seinni leikur dagsins og hefst klukkan 20:00 Allur ágóði miða sem Tindastóll selur rennur til körfuboltadeildarinnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir