Bríet Lilja í Skallagrím
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
13.07.2017
kl. 09.27
Króksarinn, Bríet Lilja Sigurðardóttir, hefur skrifað undir samning um að leika með Skallagrím næsta vetur í Dominosdeild kvenna. Bríet Lilja er 19 ára gömul en hefur þrátt fyrir það leikið bæði með meistaraflokk hjá Tindastól á Sauðárkróki (2013-2014 og 2014-2015) og Þór Akureyri (2015-2016). Hún hefur leikið með yngri landsliðum Íslands (U15, U16 og U18) en síðasta vetur bjó hún á Sauðárkróki og lék með unglingaflokki Tindastóls.
Í fréttatilkynningu frá Skallagrími segir að Bríet Lilja ætli að flytja í Borgarnes í haust og taka körfuna með trompi í vetur. Feykir óskar Bríeti góðs gengis með Skallagrími.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.