Árskort Tindastóls komin í sölu

Árskort Tindastóls.
Árskort Tindastóls.

Nú er farið að styttast í Íslandsmót hjá meistaraflokkum Tindastóls og líkt og undanfarin ár bíður knattspyrnudeildin upp á árskort til sölu sem gildir á leiki félagsins. Meistaraflokkarnir spila 20 leiki á Sauðárkróksvelli í sumar, meistaraflokkur karla spilar ellefu leiki og meistaraflokkur kvenna níu.

Árskort Tindastóls kostar 10 þúsund krónur og geta áhugasamir pantað kort með því að senda upplýsingar á fotbolti@tindastoll.is.

Knattspyrnudeild Tindastóls hvetur alla fótboltaáhugamenn til að fjárfesta í árskorti og taka þátt í spennandi sumri með deildinni.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir