Arnar Geir gerir gott mót í Missouri
Á heimasíðunni Kylfingur.is segir af því að þrír íslenskir kylfingar kepptu á Missouri Valley Fall Invitational á Marshall vellinum í Missouri dagana 24.-25. september en það vour þeir Arnar Geir Hjartarson, Birgir Björn Magnússon og Gunnar Blöndahl Guðmundsson.
Króksarinn Arnar Geir og liðsfélagar hans í Missouri Valley stóðu uppi sem sigurvegarar í mótinu á 16 höggum undir pari. Arnar lék mjög vel og endaði í 5. sæti í einstaklingskeppninni á höggi undir pari.
Birgir Björn endaði í 4. sæti á höggi undir pari í einstaklingskeppninni en hann og Gunnar keppa fyrir hönd Bethany skólans sem varð í öðru sæti í liðakeppninni. Gunnar lék samtals á 10 höggum yfir pari og endaði í 19. sæti í einstaklingskeppninni.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.