Vestnorræna ráðið fundar á Sauðárkróki

olinaSérstök þemaráðstefna verður haldin á Sauðárkróki í byrjun júní á næsta ári þar sem fiskveiðistjórnunarkerfi Íslands, Færeyja og Grænlands verða krufin auk þess sem farið verður yfir kosti þeirra og galla.

Það er sameiginlegt þessum löndum að ekkert er mikilvægara efnahagslífi landanna en sjávarútvegurinn.  Því ber löndunum að auka samstarf sitt á sviði sjávarútvegsmála.  Meðal annars ættu sjávarútvegsráðherrar landanna að tryggja að gerð verði nákvæm úttekt á því samstarfi sem löndin eiga með sér um bæði rannsóknir á lifandi auðlindum hafsins og um stjórnun fiskveiða, ekki síst varðandi stjórnun veiða deilistofna.  Þetta ályktaði ársfundur Vestnorræna ráðsins sem haldinn var í Rúnavík og Þórshöfn í Færeyjum í lok síðustu viku.

Að frumkvæði Ólínu Þorvarðardóttur varaformanns ráðsins og formanns Íslandsdeildar þess ákvað ársfundurinn að þema ráðsins árið 2010 yrði fiskveiðistjórnunarkerfi vestnorrænu landanna.  „Ísland, Færeyjar og Grænland beita mjög ólíkum aðferðum við stjórnun fiskveiða sinna og telja margir í löndunum að þeirra heimaland búi yfir besta fiskveiðistjórnunarkerfi í heimi“ segir Ólína.  Hún bendir á að í öllum löndunum hafi jafnframt komið fram gagnrýni á ríkjandi kerfi og jafnvel kröfur um endurskoðun þess, sérstaklega á Íslandi og í Færeyjum.

Ólína Þorvarðardóttir segir að Vestnorræna ráðið hafi ákveðið að leggja það til við ríkisstjórnirnar að þær auki samstarf sitt um bóklegt nám, iðnaðar- og starfsnám fyrir ófaglært starfsfólk í löndunum. Tilgangur þess er að sögn Ólínu að hvetja þá sem ekki hafa stundað framhaldsnám til að auka á þekkingu sína svo þeir verði betur búnir undir hugsanlegar breytingar á atvinnumarkaði.

Fundurinn samþykkti einnig að hvetja menntamálaráðherrana að koma á tilraunaverkefni þar sem samstarf um fjarnám á Vesturnorðurlöndum yrði formfest.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir