Verklok við Sundlaug Sauðárkróks dragast um 6 til 8 mánuði
Á fundi byggðarráðs Sveitarfélagsins Skagafjarðar í gær var tekin fyrir fyrirspurn frá Álfhildi Leifsdóttur sveitarstjórnarfulltrúa VG og óháðra um stöðu framkvæmda við Sundlaug Sauðárkróks. Fyrirspurnin og svör við henni hefur verið birt á heimasíðu sveitarfélagsins.
Samkvæmt verksamningi átti framkvæmd fyrsta áfanga endurbóta á Sundlaug Sauðárkróks að vera lokið 15. ágúst sl. Verkið hefur hins vegar tafist sökum aukins umfangs og breyttrar áfangaskiptingar verksins. Fram kemur í svörum byggðarráðs að heildarverktími verksins hafi verið áætlaður um 20 mánuðir en ljóst er nú að verklok munu dragast um 6 til 8 mánuði.
Heildar áfallinn verktakakostnaður við þennan fyrsta áfanga var í lok júlí kr. 352.256.408 og standa nú 66 m.kr. af því fjármagni eftir sem samþykkt hafði verið að verja til verksins í fjárhagsáætlun og viðauka.
Reiknað er með að hönnun annars áfanga sundlaugarinnar geti lokið á árinu 2020 en upphaf verks er háð því hvaða framkvæmdir verða samþykktar í fjárhagsáætlun ársins 2020.
Sjá nánar HÉR
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.