Vegleg gjöf í Hóla frá Magnúsi Sigurðssyni

Magnús Sigurðsson læknir og hestamaður færði Háskólanum á Hólum og Sögusetri íslenska hestsins veglega gjöf við athöfn í dag.

Magnús sem komin er yfir áttrætt hefur í gegnum tíðina safnað orðum og orðatiltækjum sem tengjast hestum og hestamennsku. Við starfslok hellti Magnús sér svo að fullu í verkefnið og vann ötullega og markvisst að gerð orðasafns á þessu sviði. Hann leitaði víða fanga m.a. í útkomnum orðabókum, fornritum, íslenskum bókmenntum, fagbókum um hestinn og í erlendum ritum. Tilgangurinn með orðabókinni var að safna sem flestu um hesta og notkun þeirra allt frá því fyrir Íslandsbyggð. Magnús hafði og í huga að gömul orð sem ný gætu komið til góða í framtíðinni þegar fjölbreytni verður meiri í hestaíþróttum og annarri hestamennsku. Magnús kallar orðasafn sitt Orðfák.

Auk þess að afhenda Háskólanum á Hólum og Sögusetri íslenska hestsins Orðfák til varðveislu og vinnslu færði hann skólanum og setrinu stórt og mikið safn gagna sem hér greinir:

  • - Íslenskar bækur (fræðirit, bókmenntir á íslensku)
  • - Erlendar bækur (fræðirit, bókmenntir á erlendum málum)
  • - Tímarit (Hesturinn okkar, Eiðfaxi, Pony Post, á íslensku, þýsku og fleiri málum)
  • - Blöð (íslensk og erlend)
  • - Ljósrit (bækur, tímarit - á íslensku og erlendum málum)
  • - Hestastyttur og fleira þess háttar (úr gibsi, gleri, málmi, plasti, leir og tré)
  • - Myndir (málaðar, teiknaðar, ljósritaðar, prentaðar og saumaðar)
  • - Blaðaúrklippur og fleira

Það skal undirstrikað að safnið er mikið og merkt og er það mikill fengur fyrir allt fræðastarf sem tengist hestum og hestamennsku á Hólum. Gjöfin eflir bókasafnið umtalsvert. Sögusetur íslenska hestsins og Háskólinn á Hólum eru þakklát Magnúsi fyrir mikilvægt starf í þágu íslenskrar tungu og menningar, höfðinglega gjöf og þann hug sem hann ber til Hóla í Hjaltadal og þess starfs sem þar er unnið.

/Fréttatilkynning

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir