Vaxtasamningur úthlutar 20.400.000
Fimmtudaginn 4. desember sl. fundaði stjórn Vaxtarsamnings Norðurlands vestra öðru sinni um úthlutanir, byggðar á umsóknum sem bárust í nóvember. Alls bárust 27 umsóknir, um tæpar 62 milljónir króna. Stjórnin ákvað að úthluta samtals kr. 20.400.000, og skiptist sú upphæð í kr. 15.000.000 í peningum og andvirði kr. 5.400.000 í sérfræðiaðstoð sem bakhjarlar VNV leggja fram Hér á eftir fylgir örstutt yfirlit um verkefnin, sem styrkt voru að þessu sinni:
Árlega sækja tugþúsundir ferðamanna Byggðasafnið í Glaumbæ heim og þar er orðið verulega aðkallandi að skipuleggja, endurbæta og stækka aðstöðuna. Til að svo megi verða þarf að ljúka tilteknum áföngum í fornleifarannsóknum á safnssvæðinu í Glaumbæ. Fornleifadeild Byggðsafns Skagfirðinga og samstarfsaðilar hennar hljóta til þess styrk að upphæð kr. 1.000.000.
Félag ferðaþjónustunnar í Skagafirði, ásamt allnokkrum ferðaþjónustuaðilum í sama héraði, hefur uppi áform um stofnun ferðamiðstöðvar með það að markmiði að koma á framfæri þeim vörum og þjónustu sem í boði eru á svæðinu og vera um leið n. k. bókunarmiðstöð. Verkefnið hlýtur styrk að upphæð kr. 1.500.000, auk fyrirheits um sérfræðiaðstoð að andvirði allt að kr. 500.000.
Handverkshús á Blönduósi er verkefni, sem fyrirtækin Sigurberg og Blanda vinna að í sameiningu. Stjórn VNV leggur þessum fyrirtækjum til sérfræðiaðstoð að andvirði allt að kr. 500.000, til frekari þróunar á hugmyndinni.
Nú er mikil vakning á meðal sláturleyfishafa og margra annarra um að bæta nýtingu og auka verðmæti ýmiss konar hliðarafurða úr slátrun og kjötvinnslu. Kjötafurðastöð Kaupfélags Skagfirðinga og MATÍS (sem nýverið opnaði starfsstöð á Sauðárkróki) fá kr. 2.000.000. til rannsókna og vöruþróunar á þessu sviði.
Hveravellir eru áningarstaður á fjölfarinni leið og nokkurs konar hlið að Norðurlandi vestra, ef komið er sunnan Kjöl. Undanfarin sumur hafa á milli 40 og 50 þúsund manns lagt leið sína á Hveravelli yfir sumarið og þar bráðliggur orðið á að taka til hendinni, bæði með tilliti til bættrar aðstöðu og þjónustu, sem og til verndar hinni stórbrotnu náttúru og sögulegra minja á staðnum. Stjórn VNV hefur ákveðið að leggja Hveravallafélaginu og samstarfsaðilum þess til framlag að upphæð kr. 1.500.000 í peningum, og sérfræðiaðstoð fyrir allt að kr. 1.000.000.
Hýruspor er vinnuheiti verkefnis, sem unnið hefur verið að um allnokkurt skeið. Markmiðið er að efla samstöðu og samvinnu þeirra sem búa og starfa á Norðurlandi vestra og byggja afkomu sína að meira eða minna leyti á íslenska hestinum. Ætlunin er að stofna formleg samtök sem skulu starfa í anda svokallaðrar „samstarfskeppni“ og er gert ráð fyrir kynningar- og stofnfundum í upphafi ársins 2009. Aðild verður opin öllum þeim, sem falla undir áðurnefnda skilgreiningu og eru tilbúnir að starfa undir þessum formerkjum. Meðal forgönguaðila eru Krossaneshestar, Sveitasetrið á Gauksmýri, Íslenskar hestasýningar og Sögusetur íslenska hestsins, auk Ferðamálasamtaka Norðurlands vestra. Verkefnið hlýtur styrk að upphæð kr. 2.000.000, auk allt að kr. 1.000.000 á formi sérfræðiaðstoðar.
Á Skagaströnd hefur um árabil verið unnið að vöruþróun á sviði bragð- og íblöndunarefna. Meðal annars er þar komin á nokkurn rekspöl þróun á bragðkjörnum byggðum á þangi. Fyrirtækin H-59 og MarinAgra hljóta styrk að upphæð kr. 2.500.000 til frekari þróunar og áætlanagerðar.
Markaðsskrifstofa ferðamála á Norðurlandi vinnur að kynningarmyndbandi (DVD) um Norðurland allt. VNV leggur verkefninu til kr. 500.000.
Laxasetur á Blönduósi er verkefni, sem Alva Kristín Ævarsdóttir hefur forgöngu um, og nýtur hún m. a. fulltingis Landssambands veiðifélaga og Blönduóssbæjar. Verkefnið hlýtur kr. 500.000 í peningum og kr. 400.000 á formi sérfræðiaðstoðar.
Möguleikar til kræklingaeldis í Húnaflóa eru til skoðunar hjá áhugasömum hópi einstaklinga og fyrirtækja á Skagaströnd. Fyrir þessum hópi fer fiskeldisfræðingurinn Jón Örn Stefánsson. VNV leggur fram kr. 1.000.000 til að afla nauðsynlegra gagna til þess að leggja mat á hvort kræklingarækt getur verið fýsilegur kostur til atvinnuuppbyggingar við Húnaflóa. Til viðbótar getur komið sérfræðiaðstoð frá bakhjörlum VNV, að andvirði allt að kr. 1.500.000.
Wild North er fjölþjóðlegt verkefni og eru helstu markmið þess uppbygging sjálfbærrar, náttúrutengdrar ferðaþjónustu á Norðurslóðum, og að treysta með því undirstöður greinarinnar, afkomu þeirra sem í henni vinna og notkun auðlindarinnar til langs tíma. Ferðaþjónustuaðilar og vísindamenn leggjast á eitt um að kanna áhrif ferðamennsku á atferli villtra dýra, með það fyrir augum að ferðamennskan hafi sem minnst áhrif á atferli dýranna og þannig á lífríkið allt. Þátttakendur af Norðurlandi vestra eru m. a. Náttúrustofa Norðurlands vestra, Æðarvarp ehf. á Illugastöðum og Hólaskóli – Háskólinn á Hólum, auk Selaseturs Íslands sem er leiðandi í verkefninu. Meðal annarra íslenskra þátttakenda má nefna Melrakkasetur á Súðavík, Fræðasetur Háskóla Íslands á Húsavík og ferðaþjónustufyrirtækið Norðursigling í sama bæ. Auk þess koma grænlenskir, færeyskir, norskir og skoskir þátttakendur að verkefninu, sem lesa má nánar um á vefnum http://www.thewildnorth.org/ . VNV leggur verkefninu til kr. 2.500.000 í peningum, auk sérfræðiaðstoðar allt að andvirði kr. 500.000.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.