Upplestur í Heimilisiðnaðarsafninu
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla, Listir og menning
15.12.2008
kl. 11.51
Í dag klukkan 16.00 verður lesið úr nýútkomnum bókum í Heimilisiðnaðarsafninu á Blönduósi. Kristín Guðjónsdóttir les úr Skaparanum eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur. Þorgrímur Þráinsson les úr bók sinni Þriðji ísbjörninn. Sigríður Hermannsdóttir les smásögu úr bókinni Með stein í skónum eftir Ara Kr. Sæmundsen. Kolbrún Zophoníasdóttir les úr bókinni Rán eftir Álfrúnu Gunnlaugsdóttur og Jón Björnsson les úr bók sinni Föðurlaus sonur níu mæðra.
Allir eru velkomnir og er aðgangur ókeypis. Súkkulaðidrykkur, kaffi, te og jólasmákökur í boði safnsins.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.