Unglingaskipti á vegum FEIF
Æskulýðsnefnd Landssambands hestamanna í samvinnu við aðra æskulýðsfulltrúa innan FEIF mun í sumar gefa íslenskum unglingum kost á að heimsækja önnur aðildarlönd FEIF.
Fyrirkomulagið verður þannig að unglingar á aldrinum 14 – 17 ára verða í 1 – 2 vikur hjá fjölskyldum sem eiga íslenska hesta og taka þátt í þeirra daglegu störfum. Þetta er tækifæri fyrir áhugasama krakka að kynnast hestamennskunni á erlendri grund og mynda vinatengsl.
Einnig er fyrirhugað að bjóða erlendum unglingum til dvalar hér á landi á sömu forsendum.
Æskulýðsnefndin óskar eftir áhugasömum unglingum sem vilja fara og fjölskyldum sem mundu vilja bjóða heim erlendum unglingum. Miðað verður við að þátttökugjald standi undir kostnaði. Þeir sem hafa áhuga geta haft samband við æskulýðsnefnd LH en tölvupóstföng og símanúmer eru á heimasíðu LH á www.lhhestar.is
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.