Tónleikar Herfölge-kórsins í Sauðárkrókskirkju

Tónleikar með Herfölgekoret frá Danmörku verða þriðjujudagskvöldið 29. júní kl. 20:30 í Sauðárkrókskirkju. Herfölgekórinn er frá Köge- svæðinu, u.þ.b. 35 km suður af  Kaupmannahöfn. Kórinn er blandaður kór og hefur starfað í yfir 35  ár.

Kórinn hefur ávallt unnið markvisst og meðvitað að fallegum  og þéttum samhljóm, sama hvaða stíltegund sem um er að ræða. Einmitt þetta er stolt kórsins og vörumerki.

Efnisskráin er  fjölbreytt; allt frá nútímalegri rytmatónlist til þekktustu  gullmola kórtónlistarinnar. Stórnandi kórsins er Nikolaj Andersen,  sem hefur stjórnað kórnum síðastliðin 6 ár.

Aðgangur að tónleikunum í kirkjunni er ókeypis.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir