Tindastóll mætir Grindavík í 8 liða úrslitum

Dregið var dregið í 8 liða úrslitum Borgunarbikars karla og kvenna í hádeginu í dag en eins og frægt var orðið komust stelpurnar í Tindastól þangað með sigri á efstudeildarliðinu Fylki fyrir stuttu. Ekki verður róðurinn auðveldur hjá stelpunum í næsta leik því þær drógust gegn Grindavík sem situr í 7. sæti Pepsídeildarinnar.

Leikurinn fer fram í Grindavík, annað hvort 23. og 24. júní, en þá eru leikdagar hjá kvennaliðum en hjá körlunum verður leikið 2. og 3. júlí.

Leikirnir í kvennaflokki eru:
Valur – HK/Víkingur
Grindavík – Tindastóll
ÍBV – Haukar
Stjarnan – Þór/KA

Í karlaflokki eru leikirnir eftirfarandi:
Stjarnan – KR
Víkingur R. – ÍBV
Leiknir R. – ÍA
Fylkir - FH

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir