Tilnefningar til knapaverðlauna

Bjarni Jónasson og Komma frá garði

Jóhann R Skúlason frá Sauðárkróki er tilnefndur til knapaverðlauna í þremur flokkum en nú liggja fyrir tilnefningar til knapaverðlauna sem veitt verða á Uppskeruhátíð hestamanna 7.nóv. nk.

Nokkrir norðlenskir hestamenn úr Skagafirði og Húnavatnssýslum eru meðal þeirra sem tilnefndir eru, Helga Una Björnsdóttir, Bjarni Jónasson, Rúna Einarsdóttir-Zingsheim, Mette Mannseth og Jóhann R Skúlason.

Einnig verða veitt heiðursverðlaun Landssamband hestamannafélaga. Tilnefndir eru:

 

Efnilegasti knapi ársins 2009

- Agnes Hekla Árnadóttir
- Camilla Petra Sigurðardóttir
- Hekla Katharina Kristinsdóttir
- Helga Una Björnsdóttir
- Linda Rún Pétursdóttir
- Rakel Nathalie Kristinsdóttir

 Gæðingaknapi ársins 2009

- Bjarni Jónasson
- Erlingur Ingvarsson
- Guðmundur Björgvinsson
- Jakob Sigurðsson
- Sigurbjörn Bárðarson
- Súsanna Ólafsdóttir

 Íþróttaknapi ársins 2009

- Halldór Guðjónsson
- Jóhann R. Skúlason
- Rúna Einarsdóttir-Zingsheim
- Sigurður Sigurðarson
- Snorri Dal
- Viðar Ingólfsson

 Kynbótaknapi ársins

- Daníel Jónsson
- Erlingur Erlingsson
- Jakob Svavar Sigurðsson
- Jóhann R. Skúlason
- Mette Mannseth
- Sigurður Sigurðarson

 Skeiðknapi ársins 2009

- Árni Björn Pálsson
- Bergþór Eggertsson
- Sigurbjörn Bárðarson
- Sigurður Sigurðarson
- Teitur Árnason
- Valdimar Bergstað

 Knapi ársins 2009

- Bergþór Eggertsson
- Erlingur Erlingsson
- Jóhann R. Skúlason
- Rúna Einarsdóttir-Zingsheim
- Sigurbjörn Bárðarson
- Sigurður Sigurðarson

 Einnig verða veitt heiðursverðlaun Landssamband hestamannafélaga.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir