Þrír Stólar í æfingahóp landsliðsins
Craig Pedersen, þjálfari landsliðs karla, og aðstoðarþjálfarar hans Arnar Guðjónsson og Finnur Freyr Stefánsson, hafa valið og boðað 24 leikmenn sem munu mæta til æfinga þann 20. júlí þegar æfingar hjá landsliðinu hefjast. Þrír af þeim verða leikmenn Tindastóls næsta tímabil þeir Axel Kárason, Sigtryggur Arnar Björnsson (sem skráður er Skallagrímsmaður) og Pétur Rúnar Birgisson.
Á vef KKÍ segir að hópurinn verði minnkaður fljótlega niður í hóp 14 til 15 leikmanna sem æfir saman í sumar og úr honum verður svo valið endanlegt tólf manna lið sem heldur út til Finnlands á lokamót EM, EuroBasket 2017.
Landsliðið mun undirbúa sig fyrir EM með æfingaleikjum gegn Belgíu hér heima 27. og 29. júlí og fara í tvær æfingaferðir í ágúst fyrir brottförina til Finnlands, fyrst til Rússlands og svo til Ungverjalands og Litháens í sömu ferð. Alls verða leiknir átta æfingaleikir í sumar fyrir EM, segir á kki.is.
Æfingahópur landsliðs karla sumarið 2017 er þannig skipaður:
Axel Kárason · Tindastóll
Brynjar Þór Björnsson · KR
Dagur Kár Jónsson · Grindavík
Elvar Már Friðriksson · Barry University, USA
Gunnar Ólafsson · St. Francis University, USA
Haukur Helgi Pálsson · Cholet Basket , Frakklandi
Hlynur Bæringsson · Stjarnan
Hörður Axel Vilhjálmsson · Keflavík
Jón Arnór Stefánsson · KR
Jón Axel Guðmundsson · Davidson University, USA
Kári Jónsson · Drexel University, USA
Kristinn Pálsson · Marist University, USA
Kristófer Acox · KR
Logi Gunnarsson · Njarðvík
Martin Hermannsson · Châlon-Reims, Frakklandi
Matthías Orri Sigurðarson · ÍR
Ólafur Ólafsson · Grindavík
Pavel Ermolinskij · KR
Pétur Rúnar Birgisson · Tindastóll
Ragnar Ágúst Nathanaelsson · Arcos Albacete, Spáni
Sigtryggur Arnar Björnsson · Skallagrímur
Sigurður Gunnar Þorsteinsson · AE Larissas, Grikklandi
Tryggvi Snær Hlinason · Þór Akureyri
Ægir Þór Steinarsson · San Pablo Inmobiliaria Burgos, Spáni
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.