Þrír gómsætir eftirréttir
Ólöf Ösp Sverrisdóttir og Snorri Geir Snorrason á Sauðárkróki voru matgæðingar Feykis í 12. tölublaði ársins 2017.
Ólöf hefur orðið: „Ég ætla að byrja á því að þakka Ingu Skagfjörð fyrir að koma mér í þessa klípu, að ég þurfti að leggja höfuðið í bleyti til að koma mér í þessi skrif. Ég ætla ekki hefðbundnu leiðina og koma með forrétt, aðalrétt og eftirrétt heldur ætla ég að gefa ykkur þrjár uppskriftir af uppáhalds eftirréttunum mínum. Þessar gómsætu uppskriftir er tilvalið að hafa í veislum, hitting eða bara einn góðan sunnudag. Vonandi munuð þið njóta góðs af þeim."
Frönsk súkkulaðikaka
Botn:
2 dl sykur
200 g smjör
200 g suðusúkkulaði
1 dl hveiti
4 stk egg
Súkkulaðikrem:
150 g suðusúkkulaði
70 g smjör
2-3 msk síróp
Aðferð-botn:
Þeytið eggin og sykurinn vel saman. Bræðið smjörið og súkkulaðið saman við vægan hita í potti. Blandið hveitinu saman við eggin og sykurinn. Bætið bráðnu súkkulaðinu og smjörinu að lokum varlega út í deigið. Bakið í vel smurðu tertuformi (ath. ekki lausbotna) við 170°C í 30 mínútur.
Aðferð – krem:
Látið allt saman í pott og bræðið saman við vægan hita. Kælið bráðina svolítið og berið hana síðan á kökuna þegar hún hefur kólnað.
Kakan á að vera blaut í miðjunni. Gott er að bera hana fram með rjóma eða ís og berjum, til dæmis jarðarberjum, hindberjum eða bláberjum.
Toblerone súkkulaðimús
500 g Toblerone súkkulaði (gróft saxað)
150 g smjör
4 egg
600 ml stífþeyttur rjómi
Aðferð:
Byrjið á því að bræða gróft saxað Toblerone og smjör yfir vatnsbaði. Þegar súkkulaðiblandan er slétt og fín er hún tekin af hitanum. Eggjunum bætt út í, einu í einu og hrært vel á milli. Síðan er súkkulaðiblöndunni hellt varlega saman við stífþeyttan rjómann og að lokum er blöndunni skipt niður í 8-12 glös/skálar.
Kælið í lágmark 3 klst. Það getur svo verið gaman að skreyta þetta með smá þeyttum rjóma og berjum eða súkkulaðispænum.
Kornflexmarengs
Marengs:
220 g sykur
4 eggjahvítur (stór egg)
2½ bolli kornflex
1 tsk lyftiduft
Fylling:
5 dl rjómi
Nóg af Nóa kroppi
Karamellukrem:
4 eggjarauður
4 msk flórsykur
100 g Pipp súkkulaði með bananakremi
2 msk rjómi eða mjólk
Aðferð:
Ofn hitaður í 120 gráður við blástur. Eggjahvítur, lyftiduft og sykur er stífþeytt. Þá er kornflexi bætt varlega út í marengsinn með sleikju. Marengsinum er skipt í tvennt og hann mótaður í tvo jafnstóra hringi á sitthvora plötuna. Því næst er sléttað jafnt úr honum með sleikju eða spaða. Þá er marengsinn bakaður í 120°C í heitum ofni í ca. 50 – 60 mínútur.
Rjóminn er þeyttur, Nóa kroppinu er bætt út í rjómann og sett á milli.
Eggjarauður og flórsykur þeytt vel saman. Pippið er sett í skál ásamt 2 msk af rjóma eða mjólk og brætt yfir vatnsbaði. Eggjarauðu- og flórsykurblöndunni er svo blandað út í súkkulaðið. Kreminu er því næst dreift yfir marengstertuna
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.