Þórdísarganga á Spákonufell í kvöld
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla
03.07.2009
kl. 09.49
Menningarfélagið Spákonuarfur á Skagaströnd stendur fyrir göngu á Spákonufell í kvöld klukkan 21:00. Á síðasta ári voru farnar tvær Þórdísargöngur á Spákonufell sem tókust mjög vel og voru þátttakendur alls um 150. Fararstjóri er að vanda, sagnamaðurinn Ólafur Bernódusson. Hann segir frá Þórdísi Spákonu og bendir á staði sem tengjast sögu hennar.
Mæting er við Golfskálann að Háagerði. Að lokinni göngu verður boðið upp á nátthressingu sem er innifalin í þátttökugjaldinu sem er 1.500 krónur en ókeypis er fyrir yngri en 16 ára.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.