Textinn sem sigraði Rímnaflæðið
Sveinn Rúnar Gunnarsson frá félagsmiðstöðinni Friði á Sauðárkróki sigraði í rappkeppninni Rímnaflæði sem Samfés og félagsmiðstöðin Miðberg sáu um og fjallað var um bæði hér á vefnum og blaðinu Feyki. Forvitni okkar uppskar það að við fengum textann sem hann flutti í keppninni hjá Sveini og gaf hann okkur leyfi til að birta hann.
Draumar
Við lifum í heimi þar sem draumar eru rengdir/
Trú á manni sjálfum alveg horfin svo mér leiðist/
Draumarnir rengdir/, flengdir/ að lokum hengdir/
Svo að bjarsýni er hvergi/ og framtíðin er engin/
En ég hef löngum legið/ einsamall og hugsað-djúpt /
Um fortíðina og djúpan skurð/ sem aldrei verður þurkaður/
Ég virka laus við áhyggjur en í sál minni er erfitt-líf/
Var alltaf vinalaus einmana og eymdin merkti-mig/
Var erfitt-fífl/, talaði og gat ekki hamið-mig/
Og ef þú hefðir mótmælt mér þá hefði ég lamið-þig/
Vantaði athygli/ og sýndi það með leiðindum/
En þurfti svo að feisa það og eymdinni seint gleymiru/
Ég reiddist hratt og stundum gekk ég yfir strikið/
Og oft sat ég því einn heima og hugsaði um lífið/
Ég oft hef tendrað mikið-bál-í-rótum-tímanna/
Því ég var bara lítil-sál-stórum-líkama/
Draumar eru eitthvað sem að varla þekkist lengur/
það kemur dagur eftir annan dag og þú ert alltaf þreyttur/
Ef þú átt draum þá skaltu segja engum frá-því/
Því hlutverk hans er leyndarmál og framtíðin er falin/
Mig dreymdi eitt sinn draum um að eineltið það stoppaði/
Og ég sagði engum frá því og betri vegur opnaðist/
Og það er eitt sem hefur hjálpað mér í gegnum fortíðina/
Því ef mér líður illa ég stilli á play og hlusta á tónlistina /
Nú er ég orði eldri og er sálarlega kröfuharður/
Lífið mitt er saga og tónlistin er sögumaður/
Ef mér líður illa þá hlusta ég á tónlist /
Þá hverfur vanlíðan og sálin fyllist blómstri/
Sem líka sjálfur og gleymi mér um stundar-korn/
Sem lag og texta lagið hljómar undra-flott/
kannski er það rugl en samt mun ég glaður birta það/
En mér líður vel í dag og því er ég að syngja lag/
Varst ekki manneskjan sem þorði/ og hafði þolið/
Varst opin/ en sálin brotin/, brostið/ stoltið/ en þú brostir/
Lífið er horfið/, stolti/ troðið/ ofan í tómið/
En óttinn/ heyrði ópin/ og loksins/ ertu hólpinn/
Sveinn Rúnar
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.