Sýning í Gamla kaupfélaginu
Myndlistarsýningin SOLITUDE - Landslag í umróti, sem er sett upp af Nesi Listamiðstöð á Skagaströnd í samvinnu við Neues Kunsthaus Ahrenshoop og Kunstlerhaus Lukas, er samsýning listamanna frá Íslandi, Lettlandi og Þýskalandi. Sýnt er í Gamla kaupfélaginu.
Listamennirnir unnu allir útfrá ljóðum skálda frá þessum löndum og íslensku skáldin sem listamennirnir leggja út frá eru Steinunn Sigurðardóttir og Andri Snær Magnason. Fulltrúar Íslands á sýningunni eru Ragnhildur Stefánsdóttir, Þórdís Alda Sigurðardóttir, Hrafnhildur Sigurðardóttir og Jeannette Castioni. Verkin á sýningunni eru afkvæmi spurninga á borð við: ,,Er draumastaður mannsins ennþá til, þar sem hann getur notið einveru, unaðar og hvíldar?“ og ,,Hvernig geta listir stuðlað að meðvitaðri umgengni við náttúruna?“ Sýningunni frá Ahrenshoop í Norðaustur Þýslandi fylgir vegleg sýningarskrá.
Opnun sýningarinnar verður laugardaginn 11. júní kl 15:00 í Gamla kaupfélaginu á Skagaströnd og framinn verður gjörningur kl. 15:30.
Sýningin er opin um helgar frá kl. 13:00 – 17:00 og virka daga eftir samkomulagi í síma 452 2816 og hún stendur til 30. ágúst.
Þessi glæsilega myndlistarsýning er styrkt af Menningarráði Norðurlands vestra, Fisk Seafood á Sauðárkróki og Minningarsjóði um hjónin frá Garði og Vindhæli.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.