Sveitarfélög á Norðurlandi vestra vilja reisa lyfjaverksmiðju

Vísir greinir frá því að ef  áætlanir Sambands sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) ná fram að ganga mun rísa lyfjaverksmiðja á Norðurlandi. Staðsetning hefur ekki verið ákveðin en Blönduós er helst nefndur.

Um framleiðslu svokallaðra innrennslislyfja er að ræða. Starfshópur á vegum heilbrigðisyfirvalda komst að þeirri niðurstöðu 2005 að hefja skyldi framleiðslu slíkra lyfja hérlendis án tafar ellegar stórauka birgðahald í öryggisskyni.

Jón Óskar Pétursson, framkvæmdastjóri SSNV, segir hugmyndirnar byggja á gengisþróuninni. Nú sé fyrir hendi rekstrargrundvöllur lyfjaverksmiðju ólíkt því sem var þegar áform voru síðast uppi um þennan iðnað árið 2005.

„Innviðirnir eru allir til staðar hér á Norðurlandi og af hverju skyldum við ekki nýta okkur það? Lyfjakostnaður heilbrigðisstofnana hefur verið til umfjöllunar og öll gjaldeyrissparandi framleiðsla er af hinu góða. Í framhaldinu mætti síðan skoða útflutning þessara lyfja auk þess sem möguleikar eru til að víkka út framleiðsluna í framhaldinu, til dæmis í framleiðslu dýralyfja."

Jón Óskar segir að undirbúningur lyfjaframleiðslunnar, hvað varðar stærð verksmiðjunnar og framleiðslugetu, byggi á skýrslu starfshóps heilbrigðisyfirvalda frá 2005. Starfshópurinn mælti þá með að verksmiðja yrði byggð og rekin í tengslum við Landspítalann. Í fundargerð í lok árs 2005 segir að engan tíma megi missa og komst hópurinn að þeirri niðurstöðu að þriggja mánaða birgðir væru ásættanlegar ef starfrækt væri lyfjaverksmiðja hérlendis. Annars væri nauðsynlegt að hafa tólf mánaða birgðir í landinu á hverjum tíma en mjög erfitt getur verið með aðdrætti ef kæmi til heimsfaraldurs, og er inflúensa nefnd sérstaklega. Einnig gæti mikil aukning á innrennslislyfjum orðið við atburði af völdum annarra sýkla, eiturefna, hópslyss eða náttúruhamfara.

Haraldur Briem sóttvarnarlæknir segir innlenda framleiðslu innrennslislyfja vera öryggisatriði. „Það væri til bóta að vera ekki háð innflutningi þessara lyfja. Það ætti að meta það alvarlega hvort ekki sé ástæða til að kosta nokkru til að hafa slíka verksmiðju hér. Þetta er þó fyrst og síðast pólitísk ákvörðun."

Haraldur segir að sex mánaða birgðir séu í landinu nú. Hann telur það vera nægjanlegt en þörfin var endurmetin nýlega. Hann segir að framleiðsla innrennslislyfja sé til staðar í Færeyjum og rætt hafi verið um að gera samning á milli þjóðanna um lyfjakaup.

Heimild: Visir.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir