Styrkir vegna starfsmenntunar 2009
Starfsmenntaráð auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna starfsmenntunar í atvinnulífinu, sbr. lög nr. 19/1992 um starfsmenntun í atvinnulífinu. Til úthlutunar eru um 30 milljónir króna. Eingöngu er tekið við umsóknum á rafrænu formi.
Starfsmenntaráð hvetur umsækjendur til að sækja um verkefni sem falla undir eftirfarandi áherslur:
Verkefni sem tengjast erfiðri stöðu á vinnumarkaði.
Gæðaverkefni sem nýtast þeim hópum sem misst hafa atvinnu eða eru í sérstakri áhættu með að missa vinnuna.
Gerð er krafa um samstarf við samtök atvinnurekenda og launafólks við gerð og framkvæmd verkefnisins.
Áhersla er lögð á að öll verkefni sem sótt er um styrk til séu vel undirbúin og umsóknir vandaðar.
Umsóknarfrestur er til 7. september 2009
Markmiðin sem Starfsmenntaráð gengur út frá við val á verkefnum eru að:
verkefnin nái til sem flestra
verkefnin mæti sýnilegri þörf á endurmenntun
verkefnin séu unnin í samvinnu ólíkra aðila.
------------------
Verkefni sem styrkt eru skulu framkvæmd næsta skólaár á eftir úthlutun.
75% af styrk er greitt út við úthlutun og 25% við lokauppgjör.
Rétt til að sækja um styrk eiga:
Samtök atvinnurekenda og launafólks, einstök fyrirtæki, einkaaðilar eða opinberir aðilar sem standa fyrir starfsmenntun í atvinnulífinu, starfsgreinaráð einstakra atvinnugreina.
Að þessu sinni verða verkefnin alltaf að vera unnin í samstarfi atvinnurekenda og launafólks. Umsóknir frá skólum koma aðeins til greina þegar um er að ræða samstarf við framangreinda aðila, einn eða fleiri.
Uppgjör vegna styrkveitinga
Uppgjörum fyrir veitta styrki ber að skila eigi síðar en 12 mánuðum eftir styrkveitingu á þar til gerðum eyðublöðum. Ef uppgjör liggur ekki fyrir innan 12 mánaða ber að skila inn greinargerð yfir stöðu verkefnisins til Starfsmenntaráðs.
Fyrri hluta styrksins ber að sækja ekki seinna en þremur mánuðum eftir að úthlutun átti sér stað og ef ljóst er að verkefnið fer ekki af stað, tilkynna það tafarlaust. Ráðinu er heimilt að veita frest til að skila inn lokauppgjöri, þó aldrei lengur en til næstu áramóta þar á eftir.
Sérstök athygli er vakin á ákvæðum höfundarréttarsamnings sem Starfsmenntaráð og styrkþegi gera sín á milli sem heimilar aðgang og afnot Starfsmenntaráðs af efni sem hlotið hefur styrk.
Til að sækja um styrkinn smelltu þá hér : Erfið staða 2009
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.