Starfsmenn í þjónustu við fatlað fólk hélt haustfund

Starfsfólk í þjónustu við fatlað fólk. Frá vinstri: Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir, Hlynur Örn Sigmundsson, Stefanía Sif Traustadóttir, Alma Dögg Guðmundsdóttir, Sigþrúður Jóna Harðardóttir, Guðberg Ellert Haraldsson, Guðrún Ösp Hallsdóttir, Guðrún Hanna Kristjánsdóttir, Jón Ingi Björgvinsson og Auður Inga Ingimarsdóttir. MYND: SKAGAFJÖRÐUR.IS

Ráðgjafar, deildarstjórar og forstöðumenn starfsstöðva í þjónustu við fatlað fólk á Norðurlandivestra og stuðnings – og stoðþjónustu í Skagafirði, ásamt félagsmálastjóra, héldu haustfund í Skagafirði nú í september en frá þessu segir á heimasíðu Skagafjarðar. „Það að koma saman er mikilvægur vettvangur til að ræða saman, koma sínum hugmyndum og skoðunum á framfæri og njóta samveru.“

Fram kemur að Skagafjörður er leiðandi sveitarfélag í þjónustu við fatlað fólk á Norðurlandi vestra. „Meðal annars veittur stuðningur á heimilum fólks, í iðjum – dagþjónustu á Hvammstanga, Blönduósi og skammtímadvöl á Sauðárkróki auk ráðgjafar og stuðnings- og stoðþjónustu. Alls eru um 115 manns sem njóta þjónustu og um 100 starfsmenn í um 70 stöðugildum. Störf eru mjög fjölbreytt og gefandi, allt frá því að vera tilfallandi vaktir vegna afleysinga í fastar vaktir á dag-, kvöld-, nætur-, og helgarvöktum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir