Staða framkvæmda við sundlaugina á Hvammstanga

Sundlaugin á Hvammstanga. Mynd: Hunathing.is
Sundlaugin á Hvammstanga. Mynd: Hunathing.is

Á heimasíðu Húnaþings vestra er greint frá því að síðustu vikur hefur áfram verið unnið að því að ljúka við tengivinnu í kjölfar gerð lagnakjallarans við sundlaugina á Hvammstanga.

Vaðlaugin er nú komin í fulla virkni ásamt trúðapotti og lauginni sjálfri. Rennibrautin kemst gagnið eftir nokkra daga.

Við vinnu við gangsetningu heita pottarins kom hins vegar í ljós alvarleg bilun í búnaði. Nú er ljóst þann búnað borgar sig ekki að gera við og þarf að panta nýjan erlendis frá. Því miður er nokkur bið eftir því að hann komi til landsins og má gera ráð fyrir að heiti potturinn verði lokaður eitthvað áfram.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir