sr Úrsúla vígð til prests
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla
16.12.2008
kl. 08.24
Á sunnudag, þriðja sunnudag aðventu, vígði sr Jón Aðalsteinn Baldvinsson sr Úrsúlu Árnadóttur til þjónustu á Skagaströnd. Til altaris þjónaði sr Hjörtur Pálsson. Vígsluvottar voru sr. Gísli Gunnarsson, sr. Sigríður Gunnarsdóttir, sr. Hildur Inga Rúnarsdóttir og sr. Guðni Þór Ólafsson, prófastur í Húnavatnsprófastsdæmi, sem lýsti vígslu.
Það var kór Hóladómkirkju sem söng við athöfnina en organisti var Jóhann Bjarnason. Sr Úrsúla hyggst flytja búferlum frá Akranesi yfir hátíðirnar og hefur störf þann 1. janúar.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.