Sr. Magnús Magnússon valinn í Breiðabólstaðarprestakalli
feykir.is
Vestur-Húnavatnssýsla
11.11.2009
kl. 09.48
Valnefnd í Breiðabólstaðarprestakalli ákvað á fundi sínum þann 5. nóvember síðastliðinn að leggja til að sr. Magnús Magnússon verði skipaður sóknarprestur í Breiðabólstaðarprestakalli í Húnavatnsprófastsdæmi. Embættið veitist frá 1. nóvember.
Umsóknarfrestur rann út þann 22. október síðastliðinn. Fjórir umsækjendur voru um embættið. Biskup Íslands skipar í embættið til fimm ára að fenginni umsögn valnefndar. Valnefnd skipuðu níu fulltrúar Breiðabólsstaðarprestakalls ásamt prófasti í Húnavatnsprófastsdæmi.
Magnús hefur verið sóknarprestur á Ólafsvík en er að fara á heimaslóðir, en hann er fæddur og uppalinn á Staðarbakka í Miðfirði.
/kirkjan.is
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.