Sparkvöllur í Varmahlíð
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
10.12.2009
kl. 08.30
Það hyllir undir það að sparkvöllurinn í Varmahlíð verði fullgerður en félagið sótti um styrk til sveitarstjórnar til þess verkefnis.
Byggðarráð samþykkti á síðasta fundi sínum tillögu sveitarstjóra að fjármagn til að ljúka framkvæmdinni yrði tekið af framkvæmdaliðum sem gert er ráð fyrir í fjárhagsáætlun ársins 2009 og ekki verður farið í á árinu. Áætluð fjárhæð er kr. 3.000.000.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.