Spákonuganga á laugardag
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla
11.08.2009
kl. 08.35
Spákonuarfur efnir til Þórdísargöngu á Spákonufell laugardaginn 15.ágúst kl. 10:00 Gangan er tileinkuð Þórdísi spákonu.
Lagt verður af stað frá golfvellinum á Skagaströnd. Að lokinni göngu verður boðið upp á veitingar sem eru innifaldar í verði.
Fararstjóri í göngunni er Ólafur Bernódusson. Á leiðinni mun hann fræða þátttakendur um Þórdísi spákonu og vísa á staði sem tengjast sögu hennar og afrekum.
Þátttökugjald er 1.500.-kr en frítt er fyrir 16 ára og yngri.
Upplýsingar í síma 861-5089
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.