Söngferð til Reykjavíkur.
Karlakórinn Lóuþrælar í Húnaþingi heldur til Reykjavíkur 14. nóvember og syngur í Seltjarnarnesskirkju kl 16 þann dag. Söngstjóri Lóuþræla er Guðmundur St. Sigurðsson og undirleikari Elinborg Sigurgeirsdóttir.
Kórinn skipa á þriðja tug félaga úr öllum sveitum héraðsins. Söngdagskráin er blönduð með íslenskum og erlendum sönglögum. Kórinn hefur gefið út 4 geisladiska á starfsferlinum, sá nýjasti er jóladiskur frá árinu 2008. Eru þeir til sölu á tónleikunum. Aðgangseyrir er 1800 krónur.
Ákveðið er, að Lóuþrælar fari til Vesturheims næsta sumar, og syngi m.a. í Winnipeg á íslendingadaginn, sem er 1. sunnudagur í ágúst. Mikil tilhlökkun er meðal kórfélaga og er kórinn þegar farinn að æfa fyrir dagsskrá þessa, sem verður bæði þjóðleg og og einnig á léttari nótum. Að sögn söngstjóra er enn pláss á söngpöllum fyrir nýja kórfélaga
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.