Skýrslu um aðgerðir gegn riðuveiki skilað til matvælaráðherra
Í tilkynningu frá Matvælaráðuneytinu segir að sérfræðingahópur sem Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra skipaði 16. maí sl. hefur skilað skýrslu sem ber heitið „Aðgerðir gegn riðuveiki - ný nálgun með verndandi arfgerðum“.
Í skýrslunni er að finna greiningu hópsins á núverandi stöðu og tilllögur útfærslum við ræktun fjár með með verndandi arfgerðir. Einnig lagði hópurinn mat á árangur aðgerða stjórnvalda frá því að skipulagður niðurskurður hófst á níunda áratug síðustu aldar. Jafnframt var lagt mat á væntan árangur ræktunar á verndandi arfgerðum og mögulega verndandi arfgerðum og gildi mögulegra smitvarna til að hefta útbreiðslu riðusmits. Gert var ennfremur mat á smitvarnarráðstöfunum í hjörðum með tilliti til niðurskurðar og mat lagt á önnur fagleg álitamál um riðuveiki og varnir gegn henni.
Hópurinn leggur m.a. til að gefin verði út sameiginleg landsáætlun stjórnvalda, Matvælastofnunar og bænda um riðuveikilaust Ísland, þ.m.t arfgerðagreiningar. Einnig að stutt verði við sæðingar með hrútum sem bera verndandi arfgerðir og komið á fót samstarfi við.
Sérfræðingahópinn skipuðu þau Erla Sturludóttir dósent við LbhÍ, Hákon Hansson dýralæknir, Jón Hjalti Eiríksson lektor við LbhÍ, Ólafur Jónsson héraðsdýralæknir, Stefanía Þorgeirsdóttir líffræðingur hjá Tilraunastöð HÍ að Keldum, Vilhjálmur Svansson, dýralæknir hjá Tilraunastöð HÍ að Keldum og Thor Aspelund, prófessor við HÍ í líftölfræði.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.