Skóli fyrir alla

Eldur Smári Kristinsson.MYND AÐSEND
Eldur Smári Kristinsson.MYND AÐSEND

Fyrr í mánuðinum kynnti ég menntastefnu Lýðræðisflokksins á leik-og grunnskólastigi undir fyrirsögninni „Fræðsluskylda í stað skólaskyldu“.

Í upphafi síðustu aldar var fræðsluskylda á Íslandi, og skólaskylda á aldrinum 10-14 ára sett í lög árið 1907 í hinum sögufrægu fræðslulögum.

Ég vil kafa aðeins dýpra ofan í liðinn er kemur að fræðsluskyldu og ólíku rekstrarfyrirkomulagi menntastofanna á grunnskólastigi.

Við erum ekki að tala hér um einkavæðingu skólakerfisins. Í menntastefnu Lýðræðisflokksins kemur skýrt fram að fjármagn skal fylgja hverju barni óháð rekstarformi og kennslufyrirkomulagi, á jafnræðisgrundvelli. Til þess að tryggja að markmið leik-og grunnskólalaga náist er, eins og nú, stuðst við aðalnámskrá leik-og grunnskóla.

Ég ólst að hluta til upp í Danmörku. Í Danmörku er engin skólaskylda. Hinsvegar er svokölluð „undervisningspligt“ sem á góðri íslensku kallast fræðsluskylda. Í dönsku fræðslulögunum er það réttur foreldra sem ákvarðar hvernig menntun barnsins skal háttað. Við skulum hafa hugfast að börnin eru jú foreldranna, ekki ríkiseign. Flestir foreldrar barna á skólaaldri í Danmörku velja að senda börnin sín í hefðbundna skóla rekna af sveitarfélaginu, en þeir hafa þó val um að kenna börnum sínum heimafyrir, ráða til sín einkakennara eða jafnvel senda barnið í svokallaða „frískóla“ sem eru reknir af t.d. sjálfseignarstofnunum.

Við eigum reyndar nokkra slíka skóla hér, eins og t.d. Ísaksskóla, Landakotsskóla, Waldorfskólana, skóla aðventista og skóla Hjallastefnunnar til að nefna nokkur dæmi.

Þessi stefna okkar er því ekki úr lausi lofti gripin. Það blasir við að réttur foreldra til að ákveða kennslufyrirkomulag fyrir börnin sín, og bein aðkoma þeirra hefur verið á undanhaldi hér á landi síðsutu ár.
Ýmsar lagasetningar sem á yfirborðinu virðast sakleysilegar og af hinu góða, eins og t.d. farsældarlögin sem voru samþykkt á Alþingi árið 2021 hafa einmitt gengið að þessum rétt foreldra til þess að hafa bein áhrif á afdrif barna sinna í menntakerfinu.

Ég þekki t.d. dæmi þess, þar sem ágreiningur hefur blossað upp af siðferðislegum ástæðum á milli forsjáraðila og skólastjórnenda, að málum hefur m.a. lyktað með bréfsendingum frá bæjarlögmönnum sveitarfélaga til foreldra sem beinlínis kunngjörir þeim að það sem gerist innan veggja skóla sé þeim algjörlega óviðkomandi.

Þetta er vitaskuld óviðundandi samskipti við foreldra sem eru að sinna barnauppeldinu af alúð og samkvæmt eigin siðferðislegri vitund, sem er réttur hvers og eins í lýðræðissamfélagi.

Hvergi fleiri börn í sérkennsluúrræði en á Íslandi

Í síðustu viku heyrði ég viðtal á gömlu gufunni (Rás 1) við Guðbjörgu Rut Þórisdóttur, læsisfræðing. Í því kemur fram að um 34% barna eru í sérkennsluúrræði í grunnskólum landsins. Þetta gefur tilefni til þess að íhuga hvort þetta „uniform“ skólakerfi sem hér hefur þróast síðustu áratugina (síðan skóli án aðgreiningar-stefan var tekin upp í kringum 1994) henti öllum nemendum. Það virðist að núverandi fyrirkomulag henti alls ekki stórum hluta nemenda. Þegar helmingur drengja og þriðjungur stúlkna geta ekki lesið sér til gagns við lok grunnskóla, og þ.a.l. með afar takmarkaða möguleika á framhaldsnámi – þá verður að bregðast við. Við verðum að búa þannig um hlutina að grunnmenntun nái að fanga áhuga allra barna og að unnið sé markvisst með styrkleika sérhvers barns, eins fjölbreyttir og ólíkir þeir eru. Það styrkir sjálfsímynd þeirra og vellíðan.

Höfundur er oddviti Lýðræðisflokksins í Norðvesturkjördæmi

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir