Skólabúðirnar að Reykjum í gang

Skólabúðirnar að Reykjum í Hrútafirði eru að fara í gang eftir jólafrí en þann 5. janúar komu fyrstu hópar ársins. Einhverjir skólar hafa hugleitt að senda ekki krakka í vetur vegna niðurskurðar í skólakerfinu.

Starfsfólk í Skólabúðunum í Reykjaskóla vonar svo sannarlega að ástandið í þjóðfélaginu hafi sem minnstar afleiðingar á komu skólanna í Skólabúðirnar og  telja að hafi einhverntíman verið þörf fyrir svona starfsemi eins og skólabúðir eru, þá er það akkúrat núna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir