Síðustu forvöð að sjá Rúa og Stúa

Rúi og Stúi í stuði.

Nemendur Húnavallaskóla hafa verið mjög dugleg að sækja barnasýningar Leikfélags Sauðárkróks undanfarin haust.  Í gær var sett upp sérstök aukasýning á Rúa og Stúa fyrir Húnavallaskóla, enda lítið pláss fyrir aðra í Bifröst því hópurinn að vestan taldi 75 manns og skemmti sér hið besta.

Nú eru einungis 4 sýningar eftir og þar af er uppselt á fyrri sýninguna á laugardaginn.  Það er  því er um að gera að festa sér miða strax á lokasýningarnar í síma 849-9434, en síðasta sýningin er kl. 14:00 á næsta sunnudag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir