Séra Guðbjörg skipuð prestur í Hafnarfirði

gudbjorgpresturValnefnd Hafnarfjarðarprestakalls ákvað á fundi sínum miðvikudaginn 2. september að leggja til að sr. Guðbjörg Jóhannesdóttir verði skipaður prestur í Hafnarfjarðarprestakalli en Guðbjörg var í 9 ár prestur í Sauðárkróksprestakalli.

Guðbjörg Jóhannesdóttir vígðist til Sauðárkróksprestakalls 5. ágúst 1998 og starfaði þar til hausts 2007. Frá þeim tíma hefur hún m.a. þjónað í Háteigskirkju, Selfosskirkju og Neskirkju.

Guðbjörg er með MA próf í sáttamiðlun og átakastjórnun frá Háskólanum í Kaupmannahöfn auk þess að hafa aflað sér víðtækrar símenntunar á sviðum er snerta prestsþjónustu og guðfræði.  Átta umsækjendur voru um embættið.

Heimild: kirkjan.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir